tirsdag den 6. november 2007

Maraþon

Þegar ég fór á nýliða kynningu hjá Glitni um daginn var okkur kynnt fyrir hið árlega maraþon sem er góðgerðarhlaup sem Glitnir stendur fyrir.

Ég ákvað að ég GET, ÆTLA OG SKAL, hlaupa maraþonið til að heiðra minninguna hans pabba. Eftir að hafa rætt smá við góðar vinkonur ákváð ég að ég ætla að hlaupa 10 km næst, svo 21 km og svo árið 2011 þegar pabbi hefði orðið 60 ára ætla ég að hlaupa heilt maraþon fyrir hann. Ég ætla að reyna að fá eins marga með mér í lið, þar sem við getum hlaupið til styrktar krabbameinssjúkum og allir geta verið í bolum með myndir af þeim sem þeir hafa þurft að kveðja vegna krabba rabba. Finnst ykkur þetta ekki góð hugmynd ?

kveðja
Kristín

Í minningu pabba

Ég hef ákveðið að stofna þetta blogg til að heiðra minninguna hans pabba. Sorgin sem hefur heltekið mig og fjölskylduna síðan 28.júlí er oft á tíðum óbærileg, ég vona að þetta blogg geti verið staður þar sem góðar minningar geta fengið að lifa að eilífu.