Í dag eru 2 dagar þangað til ár er liðið síðan þú kvaddir okkur. Ég er ennþá svo reið sjálfri mér að hafa ekki verið á landinu þegar þú kvaddir. Ég vildi bara að ég hefði fengið tækifæri á að vera hjá þér, að geta sagt bless við þig, haldið í hönd þína, látið þig vita hversu frábær pabbi þú varst.
Mér finnst alveg hræðilegt að þú hafir ekki haft neinn hjá þér, í aðgerðinni sagði líkami þinn bara stopp og gat ekki meir. Já sumt er bara ekki hægt að gæsa.
Í dag ætla ég að fara í bæinn, ég ætla að kíkja í smá kaffi til Magga og fjölskyldu. Maggi vill ekkert halda uppá afmæli sitt eftir tvo daga og það skil ég mæta vel, ég vona bara að það sé núna en ekki alltaf.
Strákarnir ætla svo að fá að kíkja á leiðið þitt, Victor hefur frá svo mörgu að segja og þegar hann kemur að leiðinu þínu samkjaftar hann við þig. Ég vona að þú sjáir það, mér er sagt að hann samkjaftar eins og móðurin :) Ef guttarnir eru svo í réttu skapi ætlum við að kíkja með blóm í heimsókn til mömmu þinnar, mér finnst alltaf svo notalegt að heimsækja hana, hún er svo saklaus í sínum eigin heimi.
Á 17.júní missti Victor Kári blöðru sína og var mjög súr, en svo alltí einu skælbrosti hann og sagði að nú hefði afi fengið blöðru sína og ætti flottustu Spiderman blöðruna hjá Guði. Hann saknar þín mikið og talar mikið um þig, ég hef kennt honum að ef hann lokar augun og ímyndar sig þig þá geti hann í raun og veru átt tíma með þér. Nokkrum dögum eftir 17.júní lág hann á gólfinu skelliskelli hlæjandi með lokuð augun, viti menn hann sá þig valhoppa um skýin með Spiderman blöðruna sína.
Elsku pabbi minn þú snertir okkur öll svo mikið, ég hef aldrei kynnst manni sem hefur haft svona jákvæð áhrif á marga. Það tala allir um góðmennsku þína, smitandi hláturinn þinn og hvað þú sýndir öllum mikinn áhuga.
Gvuð hvað ég gæfi mikið fyrir bara 1 dag með þér aftur
þín dóttur
lørdag den 26. juli 2008
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
Ingen kommentarer:
Send en kommentar