Í gær var dagurinn sem mér hefur kviðið svo fyrir. Í fyrra kveið mér líka fyrir honum en það var allt annar handleggur.
Ég vaknaði með aukaslög og alveg ferlega skrýtin. Hins vegar hugsaði ég bara jákvætt til þín allan daginn og svei mér þá ég er alveg viss um að þú sendir mér einhvern kraft. Þegar ég kom heim var bréf sem beið eftir mér, þetta var svar frá menntamálaráðuneytið þar sem þeir voru að svara kærunni minni. Pabbi þú sagðir mér alltaf að taka ekki nei sem gilt svar ef mér þætti það ekki rétta svarið, ég hef lagt fram svo margar kærur undanfarið til að fá rétt á að klára námið mitt að hálfa væri nóg.
Loksins loksins sagði ráðuneytið að það hefði sent bréf til háskólans og mælt með að ég fái að klára þetta, það er nátturlega ekki 100% svar þar sem háskólinn þarf að svara mér, en hey þetta er 99% örruggt.
Ég GÆSaði þetta pabbi, fyrir þig. Nú þarf ég bara að taka á öllu sem ég hef, læra non-stop þar til prófin eru og GÆSa þau líka.
Elsku pabbi minn, ég sakna þín alveg ótrúlega mikið
Takk fyrir auka orkuna sem þú sendir mér í gær
kv. dóttir góð
tirsdag den 29. juli 2008
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
Ingen kommentarer:
Send en kommentar