torsdag den 24. juli 2008

Að búa til minningar

Nú þegar ég sit og lít tilbaka um æsku mína þá standa uppúr margir hlutir. Ég get sko ekki kvartað undan henni, vá hvað ég fékk mikla ást og umhyggju. Bæði mamma og pabbi hafa alltaf sýnt að þau elski mann og þyki óendanlega vænt um mann. Það var aldrei langt í hrósið hjá pabba, ég man svo vel eftir mér þegar ég var nýbyrjuð í skóla, nýorðin 5 ára og sest á skólabekk í Ithaca, NY og pabbi varð ekki þreyttur á að sitja og þylja fyrir mig stærðfræðidæmin og láta mig æfa hugarleikfimi. Þegar ég sit hér og loka augunum sé ég alveg pabba fyrir mig, með sitt stóra skegg, skælbrosandi að segja við mig aftur og aftur frábært, flott hjá þér, alveg rétt, sko stóra stelpan mín. Ég efast um að pabbi gerði sér grein fyrir því þá, en svona hrós sem ég fékk í gegnum árin gerðu mig að manneskjunni sem ég er í dag. Ég hringdi ALLTAF strax í mömmu og pabba til að láta þau vita um einkunnir mínar í gegnum tíðina, og ekki vantaði að maður fann á tóninum að þau voru ánægð og sátt við árangurinn.

Maður sá líka alltaf á svipnum að pabbi var stolltur af manni, það bara sást strax. Þegar Jakob Ingi fæddist komu hann og mamma inn til mín og þá skein þessi þvílíki stollti svipur af þeim báðum, aumingja pabbi var kófsveittur og svei mér þá ég held að það hafi tekið meir á hann en mig að fæða þetta barn :)

Eitt er víst, minningarbankinn minn er stór,mikill og fullur af góðum minningum því er ég ómetanlega þakklát. Ég get bara óskað þess að mér takist að búa börnunum mínum eins gott heimili og ég fékk sem barn, og þau geti síðar meir verið ánægð með sinn minningarbanka :)

Þessir dagar eru þungir og erfiðir, ég reyni að hugsa bara jákvætt alla daga, en það er svo hræðilega erfitt þegar maður hefur ekki klett til að halla sér að þegar á móti blæs. Ég finn samt svo vel fyrir nærveruna hans pabba og ég veit að hann vakir yfir okkur og fylgist með börnunum stækka og dafna.

kv. dóttir góð

Ingen kommentarer: